20.11.1945
Sameinað þing: 9. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (3698)

49. mál, afkoma sjávarútvegsins

Flm. (Eysteinn Jónsson) :

Ég vil bara segja fáein orð út af því, sem hv. 6. landsk. sagði síðast í ræðu sinni. Ég kann að hafa mismælt mig áðan. Ég mun aldrei halda því fram, að hann hafi ráðið hér nokkru um. Hann ræður engu, hefur aldrei ráðið og mun sennilega aldrei ráða neinu um þetta. Hitt er annað mál, að þm., sem hugsa líkt og hann, þeir hafa ráðið með því að ráða yfir honum, ekki á Alþ. og í ríkisstj., heldur fyrir utan þessar stofnanir, og þess vegna ekki sízt er þannig komið sem komið er.