20.11.1945
Sameinað þing: 9. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (3704)

49. mál, afkoma sjávarútvegsins

Sigurður Kristjánsson:

Eins og ég tók fram við þessa umr., álít ég, að till. sé þýðingarlaus. Hins vegar vil ég ekki hafa afskipti af því, hvort hún fer til nefndar eða ekki, og greiði þess vegna ekki atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Till. vísað til síðari umr. með 27 shlj. atkv. og til allshn. með 27 shlj. atkv.