11.02.1946
Sameinað þing: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (3857)

162. mál, hveraorka á Reykhólum

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég ætla að bera fram eina fyrirspurn í sambandi við saltvinnsluna og fyrirhugaða rafveitu á Reykhólum, hvort hv. flm. er kunnugt um, að vatnsmagnið hafi verið mælt þarna, og hvort honum sé kunnugt um niðurstöðu þeirra mælinga, því að ég geng út frá því sem gefnu, að hann viti það.