13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í C-deild Alþingistíðinda. (3962)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Frsm. (Gunnar Thoroddsen) :

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara um þetta mál fleiri orðum. En út af brtt. A.-Sk. á þskj. 793 vil ég taka það fram, að ég er honum efnislega sammála um sumar. Ég vil því styðja þá ósk hv. 2. þm. Skagf., að hv. þm. taki brtt. aftur til 3. umr. Og mun þá að sjálfsögðu menntmn. ræða þær og reyna að ná um þær samkomulagi.