13.12.1945
Sameinað þing: 18. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í D-deild Alþingistíðinda. (3974)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Hv. þm. N.Ísf. lagði til, að þessu máli yrði vísað til allshn., og kann það að vera rétt, en nú vill svo til, að utanrmn. hefur fjallað um þetta mál, og þótt hún starfi ekki núna eftir þingsköpum, þá heyrðum við áðan, að hún var boðuð á fund, og legg ég því til, að málinu verði vísað til hennar.