18.12.1945
Sameinað þing: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (4000)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Magnús Jónsson:

Hér var útbýtt í gær nál. meiri hl. utanrmn. um till. til þál. um landsvistarleyfi nokkurra útlendinga á þskj. 281. Ég vildi óska, að hæstv. forseti vildi sjá um, að þessi till. yrði tekin á dagskrá helzt á morgun eða a. m. k. svo tímanlega, að hún geti fengið afgreiðslu áður en þinghlé verður. Ég get þessa af því, að ég hef ekki enn þá séð nál. frá minni hl. utanrmn. Væri gott, að hæstv. forseti aðvaraði minni hl. n., ef hann ætlar sér á annað borð að skila nál.

Ég skal geta þess, að málið var afgr. í n. á föstudag, svo að allmikill tími hefur verið til að ganga frá nál.