19.12.1945
Sameinað þing: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í D-deild Alþingistíðinda. (4002)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Magnús Jónsson:

Forseti lofaði mér því í gær, að eitt ákveðið mál skyldi tekið á dagskrá í dag. Hann gerði það hins vegar ekki, og skal ég ekki kvarta undan því, þar eð nóg hefur verið að starfa hér í dag. Ég mun þó halda fast við þá kröfu, að hann taki, það á dagskrá þegar á morgun og að það fái þá afgreiðslu.