20.12.1945
Sameinað þing: 21. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í D-deild Alþingistíðinda. (4019)

134. mál, landsvistarleyfi nokkurra útlendinga

Forseti (JPálm) :

Ég skal geta þess, áður en ég veiti leyfi fyrir fleiri aths., að það vakir aðallega fyrir mér, hvað hægt sé að gera fyrir þessa menn. Og ég er sannfærður um, eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, að þar hefur engin áhrif, hvort þessi till. er samþ. nú eða að mánuði liðnum. Ég þykist vita, eftir fengnum upplýsingum, að meiri hl. er fyrir þessari till. á Alþ.