12.12.1945
Sameinað þing: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2140 í B-deild Alþingistíðinda. (41)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Af því að ég sé, að hæstv. forsrh. er nú staddur hér, en það ber fremur sjaldan við, vil ég leyfa mér að spyrja hann, hvenær verði birt skýrsla um herstöðvamálið svonefnda. Það mun vera eindregin ósk alls almennings, að birt sé skýrsla um þetta mál, og skal ég ekki rökstyðja það frekar nema tilefni gefist.