27.04.1946
Sameinað þing: 41. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í D-deild Alþingistíðinda. (4118)

242. mál, þorpsmyndun á Egilsstöðum

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson) :

Ég get látið nægja að vísa á nál. á þskj. 958, en þar mæla sex nefndarmenn með því, að till. verði samþ. óbreytt. Formaður n., hv. þm. Barð., gefur þó út sérálit á þskj. 966, þar sem hann leggur til, að málið verði afgr. með rökst. dagskrá. Ég get ekki séð, að þessi dagskrá hans greiði neitt fyrir málinu, og get ég ekki fallizt á þá afgreiðslu málsins.