19.12.1945
Sameinað þing: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

16. mál, fjárlög 1946

Þorsteinn Þorsteinsson:

Af því að þessi maður, sem hér eru greidd atkv. um, lætur ekki af störfum fyrr en á næsta ári, þá getur hæstv. ríkisstj. ákveðið honum eftirlaun fyrir það ár, ef hann þá lætur af störfum, og svo næsta fjárlagaþing ákveðið hans endanlegu eftirlaun og þess vegna segi ég nei.