19.12.1945
Sameinað þing: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í B-deild Alþingistíðinda. (414)

16. mál, fjárlög 1946

Bjarni Benediktsson:

Með tilvísun til þess, sem hv. þm. Dal. sagði áðan, og með tilvísun til þess, að samþykkt þessarar brtt, væri í ósamræmi við það, sem gert var gagnvart einum elzta starfsmanni landsins áðan, próf. Ágúst H. Bjarnasyni, segi ég nei.

Brtt. 352,34 samþ. með 34 shlj. atkv.

— 362,XXXVI samþ. með 32 shlj. atkv.

— 362,XXXVII samþ. með 28:8 atkv.

— 366,XV samþ. með 29:8 atkv.

— 366,XVI tekin aftur.