27.04.1946
Sameinað þing: 41. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í D-deild Alþingistíðinda. (4148)

234. mál, fjárskipti

Páll Zóphóníasson:

Það mun nú vera alveg víst, að einn af þessum sauðfjársjúkdómum, sem talað er um að skera niður vegna, sýkir kýr (Forseti: Það er ekki til umr.) og að kýr geta verið sjúkar svo að árum skiptir án þess að sjáist á þeim og geta þá smitað sauðfé. Þess vegna tel ég, að þetta sé ekki svo rannsakað mál enn og liggi ekki svo ljóst fyrir, að hægt sé að gera sér þess fulla grein, hvort niðurskurður sé réttlætanlegur, og mun ég þess vegna sitja hjá.