23.04.1946
Sameinað þing: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í D-deild Alþingistíðinda. (4173)

244. mál, endurgreiðsla á verðtolli

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil ekki vera að tala á móti þessu máli, en ég vil benda á, að ég tel mjög vafasamt, hvort l. verður breytt með þál. Mér er nær að halda, að það sé dómur fyrir því, að þáltill. samþ. af Alþingi breyti ekki lögum. Ég hygg þess vegna, að þessi þáltill. geri hvorki til né frá, þótt samþ. sé, því að hæstv. ríkisstj. sé ekki skyldug til að fara eftir henni, og ef hún fer eftir henni, þá sé hún að framkvæma lögbrot.