27.04.1946
Efri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í C-deild Alþingistíðinda. (4175)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Forseti (StgrA) :

Ég skal gera hv. 6. þm. Reykv. það til geðs að upplýsa hann um, að málinu verður ekki vísað aftur til menntmn., þar sem þess finnast ekki dæmi, að máli sé vísað aftur til n., þegar ekkert nýtt hefur fram komið, en slíku er ekki hér til að dreifa.