27.04.1946
Efri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í C-deild Alþingistíðinda. (4178)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Ég vil mælast til þess, að hæstv. forseti sæi sér fært þrátt fyrir það, sem fram hefur farið, fyrir mín tilmæli, að fresta atkvgr. um þetta mál til kl. hálffimm. Ætla ég þá, að n. gæti notað þann tíma til þess að taka ákvörðun um, hvort hún vill greiða frv. atkv. til 3. umr. og afgr. það svo jákvætt eða neikvætt eða með rökst. dagskrá, eins og menn hafa látið sér koma til hugar.