24.04.1946
Sameinað þing: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í D-deild Alþingistíðinda. (4204)

240. mál, svíþjóðarbátar

Forseti (JPálm) :

Ég hafði ætlað mér að koma till. til n. samkv. beiðni, en ef halda skal áfram umr. um málið, er það ekki hægt vegna þess að Nd. byrjar fund kl. 9½ og einn þm. hefur þegar kvatt sér hljóðs. Mundi hv. þm. Barð. þurfa að halda langa ræðu? (GJ: Nei, en þetta er mikið alvörumál). Ég sé mér ekki annað fært en að slíta fundi og fresta umr.