27.04.1946
Sameinað þing: 42. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 208 í D-deild Alþingistíðinda. (4222)

222. mál, Staðarprestakall á Reykjanesi

Flm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég skal að mestu láta mér nægja að vísa til grg. Með þessum l. hefur verið heimilað að flytja prestssetrið frá Stað að Reykhólum. Þetta er bara áskorun til stj., og vil ég alls ekki tefja umr., en læt mér nægja að vísa til grg. Ég óska, að atkvgr. fari fram, án þess að málinu verði vísað til n.