12.10.1945
Neðri deild: 7. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í C-deild Alþingistíðinda. (4259)
8. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (viðauki)
Páll Zóphóníasson:
Áður en þetta mál fer til n., vil ég benda á það, að eftir orðalagi þess er ætlazt til, að sama verð sé á mjólkinni um allt landið, en geti þó verið tvenns konar þegar ríkið greiðir verðið niður frá mjólkurbúunum. Áður en þessi nýju lög, sem hér um ræðir, komu til sögunnar, var verðlagi mjólkurinnar hagað svo, að mjólkurverðið var misjafnt í hinum ýmsu þorpum og kaupstöðum kringum landið og það af eðlilegum ástæðum, vegna eftirspurnar og vegna þess, að það er mjög miserfitt að koma mjólkinni á ýmsa staði og framleiða mjólk í hinum ýmsu kaupstöðum. Ef þetta yrði að 1. eins og það er á þessu þskj. þá er auðsætt mál, að það er ætlazt til þess, að í landinu sem heild sé aðeins tvenns konar mjólkurverð, annað frá mjólkurbúunum og hitt beint frá framleiðendum. Þetta má ekki vera svo í framtíðinni, það eru vissir staðir, eins og Vestmannaeyjar og Siglufjörður, sem þurfa að hafa hærra mjólkurverð en aðrir, og þess vegna þarf að gera 1. þannig úr garði, að möguleikar verði á því að hafa mjólkurverðið misjafnt á ýmsum stöðum á landinu. Og það eru sérstaklega þessir tveir staðir, sem ég bendi á, annars vegar Vestmannaeyjar og hins vegar Siglufjörður, sem þurfa að hafa hærra verð. En það er útilokað að þeir geti það eftir að þessi 1. eru samþ., sem nú liggja fyrir, því að þau gera ráð fyrir tvenns konar verði í landinu, og öðru ekki.
Þetta vil ég benda n. á, áður en hún fer að fjalla um málið.