15.03.1946
Sameinað þing: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í D-deild Alþingistíðinda. (4327)

97. mál, afnotagjald útvarpsnotenda

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning, vil ég endurtaka, að ég hef ekki efazt um rétt ráðh. í málinu, en tel, að Alþ. hafi hins vegar rétt til þess að láta í ljós sitt álit á því. Ég tel, að hægt sé að kippa því í lag samkvæmt orðalagi þáltill., og efast ekki um, að ráðh. mundi fara eftir þingviljanum.