24.04.1946
Sameinað þing: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í D-deild Alþingistíðinda. (4379)

210. mál, herstöðvamálið

Forseti (JPálm) :

Það hafa verið fluttar hér ásakanir í minn garð af hv. flm. og hans flokksmönnum, að hafa þessar umr. að nóttu til, að fjarstöddum mörgum þm. Ég sé mér því ekki annað fært, því að margir eru á mælendaskrá, en að fresta þessari umr. þangað til allir þm. geta verið viðstaddir, og er umr. því frestað og málið tekið af dagskrá.