24.04.1946
Sameinað þing: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í D-deild Alþingistíðinda. (4380)

210. mál, herstöðvamálið

Einar Olgeirsson:

Er það rétt skilið hjá mér, sem hæstv. forseti sagði, að þar í felist loforð frá honum að taka þetta mál á dagskrá, þannig að hægt sé að ræða það að degi til? Því aðeins, að það sé tryggt, get ég sætt mig við, að þessu verði frestað nú. En ég skildi þessa yfirlýsingu hæstv. forseta á þann veg.