29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í D-deild Alþingistíðinda. (4412)

210. mál, herstöðvamálið

Flm. (Hermann Jónasson) :

Það er að gefnu tilefni, sem ég tek til máls. Ég kannast ekki við, að komið hafi nein önnur till. en sú, sem kom frá hæstv. utanrrh. Ef einhver önnur till. hefur komið fram, þá hlýtur það að hafa verið á fundi þriggja flokka án vitundar Framsfl., og vil ég, að það komi skýrt fram. Annars liggja fyrir skýr svör af hálfu Framsfl., þar sem er yfirlýsing miðstjórnarinnar.