29.04.1946
Neðri deild: 129. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í C-deild Alþingistíðinda. (4513)

50. mál, ríkisborgararéttur

Sigurður E. Hlíðar:

Herra forseti. Ég sé ekki betur en komið sé í fullt óefni með þetta frv. Og ég tel ótækt, að búið sé að loka annarri deild, þannig að hægt sé að stöðva mál.

Í Ed. voru felld niður úr frv, nöfn þau, sem eru á þskj. 1018. Ég vil láta 10 menn, sem til þess hafa siðferðislegan rétt, fá ríkisborgararétt, heldur en 29 fái hann ekki, og mun ég því greiða atkv. með frv., úr því að búið er að stöðva málið.