14.12.1945
Neðri deild: 53. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (4714)

140. mál, nýbyggingarráð

Forseti (BG) :

Ég er því samþykkur, sem hv. alþm. hafa sagt um fundarsókn hér í hv. þd., það er lítt viðunandi, hvernig henni hefur verið varið hjá sumum hv. þdm. En ef hv. þdm., meiri hl. bera fram áskorun um það, að reynt sé að bæta úr þessu með fundarsóknina, þá skal ég sem forseti neyta þeirra ráða, sem fyrir hendi eru, til þess að fá leiðréttingu á því, en án þess að hafa stuðning meiri hl. þd. er þýðingarlaust að reyna að koma nokkrum endurbótum á á þessu sviði.