26.04.1946
Neðri deild: 122. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í C-deild Alþingistíðinda. (4747)

177. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Frsm. (Jón Pálmason) :

Ég vil þakka þeim, sem mælt hafa með frv., en hins vegar vil ég algerlega mótmæla þeim dylgjum, sem hv. þm. Mýr. var með um það, að þar sem lagt væri til, að lögin tækju gildi 1. jan. 1947, bæri að skilja þannig, að málið ætti ekki að ná fram að ganga nú. Þá vil ég bera á móti því, að það sé sök landbn., að frv. var ekki afgr. fyrr frá nefndinni, enda veit þm. Mýr. það vel.