26.04.1946
Neðri deild: 122. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (4799)

200. mál, tollskrá o.fl.

Garðar Þorsteinsson:

Ég hef borið fram brtt. á þskj. 617 um að 11. liður 1. gr. frv. falli niður, en hv. þm. V.-Húnv. hefur umorðað till. mína á þskj. 758, og tel ég, að hans till. nái betur því, sem um er að ræða. Tek ég því mína brtt. til baka, í trausti þess, að till. hv. þm. V.-Húnv. á þskj. 758 um sama efni verði samþ.