26.04.1946
Neðri deild: 122. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (4859)
224. mál, bankavaxtabréf
Flm. (Sigfús Sigurhjartarson):
Herra forseti.
Ég get látið nægja að vísa til grg. fyrir frv. og þeirra umr., sem hafa farið fram um það efnislega í sambandi við annað mál, sem sé frv. um fyrirgreiðslu fyrir byggingum íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum. Vil ég mælast til, að málinu sé nú vísað til 2. umr. og tel æskilegast, að það mætti ganga áfram án n., svo að þinginu gefist kostur á að afgr. þetta mikla nauðsynjamál.