12.10.1945
Efri deild: 7. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (4898)
17. mál, húsmæðrafræðsla í kaupstöðum
Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):
Ég hef ekki miklu að bæta við það, sem ég hef áður sagt. Ég vil aðeins láta í ljós þá von mína, að frv. í skólamálum, sem boðuð hafa verið frá n., nái fram að ganga á þessu þingi. Annars vil ég segja það, að ég tel í alla staði óþarft að afgr. á sama þingi tvö frv., sem fjalla um sama atriðið, og ég býst ekki við, að hv. flm. ætlist til þess. Ég vænti þess eindregið, treysti því, að þessi frv., sem koma frá n., nái fram að ganga með þeim breyt., sem Alþingi vill á þeim gera, og þá mun þetta mál, sem hv. 6. þm. Reykv. ber fyrir brjósti, verða afgr. samtímis.