11.12.1945
Efri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (4933)
24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Frsm. (Jónas Jónsson) :
Eins og greinilega hefur komið fram í ræðu hv. þm. Dal., er aðstaðan orðin sú, að eftir að ríkið og sá meiri hluti, sem nú fer með stjórn landsins, er búinn að ákveða þessi ríflegu kennaralaun í fyrra, þá er orðið algert ósamræmi í þessum hlutum. Kennararnir hafa mjög góð laun, en ekkert til þess að hita með skólana. En meðan það kerfi stóð, sem byggt var upp 1938 fyrir þessa skóla, var séð fyrir tekjum, sem nægðu til þess að borga kennurunum og halda skólunum við. Nú er dýrtíðin orðin svo mikil, að það eru ekki kennaralaun, sem skólarnir hafa á milli handa. Og þess vegna hygg ég, að hv. form. menntmn, eigi að geta séð það og skilið, að eftir að búið er að segja a, verður að segja b, þ. e. eftir að ríkið er búið að taka skólana að sér með geysiháum launum, verður ríkið að samþ. þessa brtt. nú, þó að henni kannske verði breytt eða jafnvel komið fyrir og hún samþ. í sambandi við annað frv., eins og hv. form. n. gerir ráð fyrir. En umr. um málið í þessari hv. d. sýna, hvað leiðir af launal., hvernig hlutfallið verður við setningu þeirra milli launagreiðslna og rekstrarkostnaðar þessara skóla.