08.02.1946
Efri deild: 62. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í C-deild Alþingistíðinda. (4947)

33. mál, jarðræktarlög

Forseti (ÞÞ) :

Að vísu eru nú tveir og hálfur mánuður liðinn síðan minnihlutanál. var gefið út um þetta mál. En þar sem mál þetta liggur þannig fyrir, að þrír nm. af fimm hafa ekki gefið út álit um þetta má, þá vil ég verða við ósk hv. 2. þm. Árn. um að fresta nú umr. um málið og taka það af dagskrá, og er það þá gert í von um það, að afgreiðslu málsins verði hraðað í n. nú um helgina, þannig að sá nefndarhluti, sem ekki hefur enn gefið út álit um málið, geri það þegar, ef hann ætlar að gera það á annað borð.