15.11.1945
Efri deild: 31. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (5017)

75. mál, æskulýðshöll í Reykjavík

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta var afgr. með sama hætti og það nú liggur fyrir úr þessari hv. þd. í fyrra til hv. Nd., en dagaði þar uppi. Nú er frv. komið fram að nýju, og n. hefur athugað það og sá enga ástæðu til að breyta því frá því formi, er hv. Ed. samþ. það í fyrra. Allshn. leggur því til, að frv. verði samþ. óbreytt út úr deildinni.