14.11.1945
Efri deild: 30. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í C-deild Alþingistíðinda. (5038)

88. mál, útsvör

Bjarni Benediktsson:

Því miður hef ég ekki heyrt annað af ræðu hv. frsm. en það, að hann leggur til, að frv. verði vísað til heilbr.- og félmn. Ég tel, að málið heyri ekki undir þá n., heldur allshn. Samkv. fastri þingvenju hefur allshn. ætíð fjallað um þessi mál. Og það er fjarlægt, að þetta mál heyri undir heilbrigðismál eða nokkuð því líkt.