14.12.1945
Efri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í C-deild Alþingistíðinda. (5041)

88. mál, útsvör

Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :

Herra forseti. Flm. málsins hefur óskað eftir því við mig, að málið, yrði ekki afgr. nú vegna þess, hve fáir eru mættir í d. Ég vildi aðeins láta afgreiða málið, af því að tími vannst til, en sé þó ekki ástæðu til annars en verða við þeirri ósk og vil taka undir, að málinu verði frestað og að það verði tekið út af dagskrá.

Forseti tók málið af dagskrá.