29.03.1946
Efri deild: 95. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í C-deild Alþingistíðinda. (5127)

209. mál, loðdýrarækt

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Það hefur komið til orða, að flutt yrði brtt. við þetta frv., en þar sem ekki hefur enn náðst álit landbrh., verður brtt. ekki flutt við þessa umr. Ég tel nægan tíma að koma með brtt. við 3. umr. og geri ráð fyrir, að nefndin flytji þá brtt. Tel og beztu vinnubrögðin, að frv. verði samþ. óbreytt til 3. umr.