16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í C-deild Alþingistíðinda. (5145)

219. mál, hreppstjóralaun

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Mál þetta hefur komið fram hér í d. og var samþ. shlj. til 2. umr., kom fyrir fjhn., og d. og n. hafa samþ. það einróma að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Annars lýsti ég máli þessu, sem er mjög einfalt, við 2. umr. þess, og sé ekki ástæðu til að fara að endurtaka þau orð mín hér, til þess að tefja fyrir frv., þó að það reyndar sennilega nái ekki að verða að l. á þessu þingi. Ég legg sem sagt til, að málið verði afgr. nú óbreytt.