08.11.1945
Sameinað þing: 6. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í D-deild Alþingistíðinda. (5170)

80. mál, rafveitulán fyrir Eskifjarðarhrepp

Flm. (Lúðvík Jósefsson) :

Ég get verið fáorður um þessa till., því að önnur þáltill. um svipað efni hefur áður borizt Alþ. Þessi þáltill. miðar að því að heimila ríkisstj. að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs, gegn þeim tryggingum, sem ríkisstj. metur gildar, 700 þús. kr. lán til endurbóta á rafveitukerfi Eskifjarðarhrepps. Það þarf ekki að fjölyrða um nauðsyn þessa máls, rafmagnið er orðið allt of lítið og því ekki hægt að draga þetta lengur.

Ég legg svo til, að málinu verði vísað til fjvn.