11.02.1946
Sameinað þing: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í D-deild Alþingistíðinda. (5232)
154. mál, rafveitulán fyrir Eyrarbakka-, Stokkseyrar- og Sandvíkurhreppa
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Ég vona, að hv. flm. búist ekki við, að orð mín áðan hafi átt að skiljast á þann veg, að ég væri á móti fjárveitingu, þegar svona er samþ. á öðrum stað. Hjá fjvn. er heil röð af sams konar till. En svo virðist sem úr því verði skorið innan tveggja til þriggja vikna, hvaða örlög almenna frv. fær. Ég vænti þess svo að lokum, að hv. flm. geti fallizt á þetta sjónarmið mitt.