27.04.1946
Sameinað þing: 42. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í D-deild Alþingistíðinda. (5334)

208. mál, björgunarskúta Vestfjarða

Sigurður Bjarnason:

Ég vil aðeins láta hæstv. aðalforseta Sþ. vita það, að hér hefur í fjarveru hans verið haldið uppi argasta málþófi af hálfu hv. þm. Barð. Ég vil láta hæstv. forseta vita um þetta og óska þess, að þetta mál verði ekki stöðvað fyrir asnalegt og frekjulegt málþóf, sem einasta þingfífl þingsins hefur leyft sér að hafa í frammi varðandi þetta mál.