05.03.1946
Neðri deild: 80. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í D-deild Alþingistíðinda. (5397)

19. mál, verðlag landbúnaðarvara

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Ég vona, að hv. þm. virði mér það til vorkunnar, þótt ég leggi meira upp úr skýrslum hagstofustjóra en tali hv. þm., er seinast talaði. Ég vil samt benda hv. þm. á það, að í niðurlagi þeirrar greinar, sem hann las, segir hvenær gert verði upp. Reikningar hafa ekki enn legið fyrir, og ekki eru allar skýrslur komnar enn, og er því ranglátt að ásaka ráðuneytið vegna þessa.