09.04.1946
Neðri deild: 105. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í D-deild Alþingistíðinda. (5410)

122. mál, læknishéruð

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann hlutaðist til um, að svarað yrði fyrirspurn, er ég bar fram hinn 27. nóv. um það, hvað gert hefði verið til þess að fá lækna út í héruðin, og lítur út fyrir, að á þeim tíma hefði verið hægt að gefa einhverjar upplýsingar um þetta.