27.02.1946
Neðri deild: 76. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í D-deild Alþingistíðinda. (5420)

131. mál, varðbátakaup

Sigurður Bjarnason:

Ég þakka hæstv. ráðh. Það er rétt hjá hæstv. ráðh., að ég var ekki viðlátinn hér um hríð. Getur það hafa verið ástæða til þess, að hann svaraði ekki.

Ég sé ekki ástæðu til að vera ekki fyllilega ánægður með svar hæstv. ráðh. Ég beini þeirri ósk til hæstv. forseta, að fyrirspurnin verði sem fyrst tekin á dagskrá.