05.02.1946
Sameinað þing: 24. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (551)

157. mál, fjáraukalög 1942

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Enda þótt fjárlögin fyrir 1944 séu mjög há, hærri en venjulegt er, þá sé ég ekki ástæðu til að gera frv. að umræðuefni, heldur vísa aðeins til þeirra setninga, sem fylgja frumvarpinu.

Ég leyfi mér svo að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til fjvn.