01.04.1946
Efri deild: 96. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

158. mál, ríkisreikningurinn 1942

Gísli Jónsson:

Ég mun á þessu stigi málsins láta nægja að ræða þetta ekki frekar, og sérstaklega með tilliti til þess, að viðvíkjandi 12. aths. liggur víst fyrir nú hér á Alþ. frv. um breyt. á þessari stofnun, og er þá nauðsynlegt að taka til athugunar þann kostnað, sem hefur orðið af þessari stofnun, og óþægindi, sem hafa orðið í sambandi við þann rekstur, og mun ég því ekki að þessu sinni ræða nánar það atriði.