21.03.1946
Efri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í B-deild Alþingistíðinda. (659)

2. mál, eignarnám lóðarréttinda og mannvirkja á Siglufirði

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Mig langar í tilefni af því, sem stendur í nál., og því, sem hv. frsm. hefur haldið fram um þær upplýsingar, sem beðið var um, að fá að vita, á hvaða aðila hefur staðið um þessar upplýsingar. Er það á þeim, sem er handhafi þessa réttar, eða eiganda lóðanna, — eða er það sá, sem hefur beðið um eignarnám þessara lóðarréttinda, sem hefur ekki getað gefið þessar upplýsingar? Mér þykir ákaflega merkilegt, að n. skuli lýsa yfir, að hún hafi ekki getað fengið þessar upplýsingar. Það er nokkuð mikils virði fyrir málið að fá að vita, hvor aðilinn það er, sem hefur neitað að gefa upplýsingar, sem beðið er um varðandi þetta atriði.