25.03.1946
Efri deild: 91. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í B-deild Alþingistíðinda. (663)

2. mál, eignarnám lóðarréttinda og mannvirkja á Siglufirði

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Við 2. umr., þessa máls var óskað eftir nánari upplýsingum varðandi málið. Nú vil ég endurtaka þessa ósk og jafnframt biðja hv. frsm. um sams konar upplýsingar varðandi 3. mál. Einkum óska ég eftir að fá að vita, hvort búið er að framkvæma eignarnám eða hvort beðið er eftir staðfestingu þessara laga.