28.03.1946
Efri deild: 94. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (669)

2. mál, eignarnám lóðarréttinda og mannvirkja á Siglufirði

Gísli Jónsson:

Ég verð að segja það, að mér finnst þessi málsmeðferð harla einkennileg. Hæstv. ráðh. hefur engra upplýsinga leitað, vill enda ekki gefa þær, og annarri fyrirspurn hefur ekki verið svarað. (StgrA: Það er búið að framkvæma þetta). Já, eignarnámið, en hæstv. Alþ. fær ekki að vita, hvort þetta eignarnám er til tjóns eða hagnaðar. Ég er alveg hissa á hæstv. ríkisstj. og hæstv. Alþ. að láta málið fá svona afgreiðslu.