11.04.1946
Neðri deild: 107. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í B-deild Alþingistíðinda. (703)

3. mál, Tunnuverksmiðja á Siglufirði

Frsm. (Þórður Benediktsson):

Herra forseti. Um þetta mál er sama að segja og um hitt málið, frv. til l. um eignarnám lóðarréttinda og mannvirkja á Siglufirði, sem var verið að afgr. nú. N. mælir með því, að frv. verði samþ. og málið fái fljóta afgreiðslu.