15.03.1946
Efri deild: 85. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (737)

115. mál, tunnusmíði

Gísli Jónsson:

Ég skal ekki halda uppi málþófi um þessi atriði, en ég vil að gefnu tilefni beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh., hvort hann telji, að öll fyrirtæki, sem veita atvinnu að vetrinum, eigi að njóta slíkra hlunninda sem lagt er til, að þessi fyrirtæki njóti.