05.04.1946
Neðri deild: 103. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (74)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

atvmrh. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Þann 21. marz var vísað til fjhn. frv. um heimild fyrir ríkisstjórnina til ráðstafana vegna útflutnings á afurðum bátaútvegsins. Ég hef ekki heyrt neitt frá n. og vil mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið á dagskrá á næsta fundi.